Hver er ég?

  • Nafn: María Barbara Árnadóttir
  • Staður: Ástralía
  • Atvinna: Nemi

Auglýsing

Klukkan

Betra seint en aldrei :P

11. nóvember 2008 klukkan 13:55
Hehe ég er orðin mjööööög löt að blogga, og líka skoða blogg hjá öðrum þannig ég var bara ekki búin að sjá þetta klukk hjá Helgu fyrr en núna :P bött hjer jú gó....

Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina:

Vinnuskóli Reykjavíkur
Broadway
Lyf & heilsa
Heimaþjónustan

Fjórar kvikmyndir sem ég held uppá:
(eruð þið rugluð, bara 4???)

L.A. Confidential
The Notebook
Love Actually
Batman Begins


Fjórir staðir sem ég hef búið á:

Nökkvavogur
Karfavogur
Canning Highway
Forrest street

Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar:

One Tree Hill
Fóstbræður
Nip/Tuck
Sex and the City


Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:

Noregur
Ítalía
Þýskaland
Frakkland
(Ísland hehe)

Fjórar síður sem ég skoða daglega fyrir utan blogg:

mbl.is
facebook.com
msn.com
glitnir.is (fyrir gengið)  

Fernt sem ég held uppá matarkyns:

Íslenskt lambakjöt
Indverskur matur
Pizza King/Devitos
Eftirréttir í hvers kyns mynd, helst eitthvað sem inniheldur súkkulaði!

Fjórar bækur sem ég les oft:

The Vampire Lestat
Allt eftir Jodi Picoult
Allt eftir Marian Keyes
The Historian

Fjórir staðir sem ég vildi helst vera á núna:

Í fríi á sólarströnd þar sem ég þarf ekki að hugsa um neitt nema að snúa mér reglulega svo ég fái jafna brúnku
Ísland með vinum og fjölskyldu að undirbúa jólin
Í borgarferð einhvers staðar í Evrópu (Þýskaland, Ítalía, Vín)
Á ferðalagi í S-Ameríku

Fjórar manneskjur sem ég vil klukka:

Sko, það eru allir hættir að blogga, og þeir sem eru enn að blogga sem ég þekki eru búnir að gera þetta hehe
Jæja, nefni þá bara

Jóhönnu kengúru og
Jóhönnu Bettý

Halló!

30. júlí 2008 klukkan 11:50
Hehe já þið segið það, það er líf í þessu blessaða bloggi ennþá hjá manni :P

Hvað hefur drifið á daga mína síðan síðast? Það ber náttla hæst að ég kom á klakann í sumarfrí sem var bara æðislegt :) Langaði bara ekkert að fara aftur til Ástralíu tíhí :)   Náði að hitta á flesta, djammaði að hætti Íslendinga, sá eitthvað af náttúrunni og fyrst og fremst náði ég að njóta þess að vera bara í fríi :D
Núna er ég byrjuð í verklegu, og þar sem það varð einhver misskilningur milli skólans og spítalans þá er ég að gera nokkurn veginn það sama og síðast- en það er allt í lagi. Þetta er góð deild og verknámskennarinn er ótrúlega fínn :)  Verð í því næstu 5 vikurnar og fer svo í skólann aftur í 3 mánuði og þá er maður kominn aftur í frí á klakann!

Hér er bara alveg ömurlegt veður verð að mínu mati, í gær var svoleiðis grenjandi rigning (það tekur mig btw.klst að komast heim af spítalanum, þar af þarf ég að labba 10 mín í strætó og bíða þar sem er ekki skýli)! Í dag er ég ekki búin að lenda í rigningu en það er þvílíkt hvasst, ég er að vakna 3x á nóttunni því það eru svo mikil læti í veðrinu! Svo heldur fólk að ég hafi flust til Ástralíu vegna veðurblíðunnar! hehe :P

God, ég er svo þreytt þessa dagana, kl er rétt að verða átta og ég held varla augunum opnum!  Held ég hafi þetta ekki lengra- nefni kannski bara að ég er búin að setja inn eitthvað af myndum frá Íslandi og á svo eftir að setja inn fleiri :)

Hafið það gott lömbin mín, kveðja María :)

Guten Tag!

11. maí 2008 klukkan 04:59
Ok tíminn líður alveg fáránlega hratt! Mér finnst eins og það séu svona 2 dagar síðan ég skrifaði síðustu færslu, en nei það eru víst alveg 9 dagar!! og á morgun eru 4 vikur þangað til ég byrja í prófum- sem er svo sem allt í lagi því ég hlakka til að klára þessa önn og bara skólann yfir höfuð-en mér finnst ég bara ekki tilbúin! ok, jæja búin að koma því frá mér :P

Hvað hefur skemmtilegt gerst...?  Jú á föstudaginn var River Cruise með sjúkraþjálfara skorinni, sem þýðir náttla bara blindafyllerí hehe. Þemað var international, maður átti sem sagt að vera fulltrúi einhvers lands og ég ætlaði sko ekki að vera geðveikt leim og koma sem Ísland (þó að það hafi svo fullt af fólki komið sem ástralskir lífverðir hahaha). Anyway, þannig ég leigði svona Heidi búning og ákvað að vera Austurríki (upphaflega hugmyndin var að vera Þýskaland en sá búningur var ekki jafn flottur hehe :P)  Það var geggjað stuð og það eru komnar myndir inná síðuna mína, endilega kikkið á þær ;)

Jæja maður ætti kannski að koma sér að lærdómnum, verkefni-verkefni-verkefni sem bíða manns :P

Bless í bili elskurnar mínar :)

Já já já já

02. maí 2008 klukkan 09:07
Heyriði já, ég er að hugsa um að gera enn eina tilraun til að koma þessu blessaða bloggi mínu í gang aftur :P   

Hvað á maður svo sem að segja?   Það sem hefur gerst síðan síðast er náttla það að ég fór aftur til Ástralíu og í skólann að vanda og soleis.  Jóhanna kom í heimsókn og útskriftin hennar heppnaðist mjög vel, til hamingju aftur krúsí :D  það var auðvitað mikið djammað a la Íslendingar hehe......

 Er núna bara á fullu að reyna að halda í við allt sem ég þarf að gera fyrir skólann, en það eru ekki nema rétt rúmar 5 vikur þangað til ég byrja í prófum, man! :S  hljómar ennþá verra þegar maður skrifar það! :/   

Veit ekki hvort þið séuð eitthvað búin að vera að fylgjast með myndasíðunni minni en ég er búin að setja eitthvað inn af myndum, slóðin er hér til hliðar....

Hmmmm, hef ekki mikið meir að segja í bili.....  Hafið það gott elskurnar mínar, og farið vel með ykkur ;)

Kv. María oz girl/Iceland - fer eftir í hvaða heimsálfu ég er tíhí

ps. lærði ný orð yfir brjóst um daginn: Bouncing Buddhas, high beams, headlights og uppáhaldið mitt er Frost detectors  hehe

Er á lífi :P

08. janúar 2008 klukkan 15:58
Heyriði hér er ein snögg færsla, tekið af síðunni hennar Helgu :)

1. Hvenær áttu afmæli? 
26.okt
2. Ætlaru að djamma um helgina?  Ó já!!! Vinkona mín frá Ástralíu er að koma og það verður sko djammað!!
3. Ætlaru að drekka áfengi um helgina? Sjá spurningu 2

4. Hvað ertu að narta í núna? Ekkert
5. Kanntu að skvörta? ef ég nú bara vissi hvað það er.

6. Áttu msn? jebbs, hver á það ekki?
7. Hefuru búið ein?
Já, í 2 vikur :P
8. Hvað ertu með mörg tattoo? Eitt
9. Borðaru hnetusmjör? Jams
10. Tískufrík? get ekki sagt það, en reyni að velja mér föt sem fara mér vel og eru smekkleg
11. Ertu með fallegar tær?
Kannski ekkert fallegar, en ekki ljótar heldur
12. Uppáhalds óáfengur drykkur?
Íslenskt vatn
13. Uppáhalds áfengur drykkur?
bachardi lemon í sprite
14. Færðu oft hausverk?
Nei sem betur fer
15. Hefuru sofið hjá manneskju sem að þig myndi aldrei detta í hug að þú myndir sofa hjá?
pass
16. Hvað kanntu mörg tungumál?íslensku og ensku reiprennandi, bjarga mér á dönsku, norsku, sænsk og  þýsku
17. Finnst þér gaman að ferðast? Heldur betur, finnst flugvallavesen hins vegar ekki skemmtilegt :P.
18. Ef að þú myndir þurfa að velja, kyngja gaddavír og toga hann upp aftur eða láta pólverja með 28 cm typpi bomba þig í rassgatið? Hverskonar spurningar eru þetta eiginlega!
19. Uppáhalds litur? Blár, grænn, svartur, rauður
20. Uppáhalds matur?  Lambahryggur, kjöt í karri, kjötsúpa, flest sem Geyshan elder, japanskur matur
21.  Hvað hefur breytt þínu mest til hins betra? Að komast inn í skólann og kynnast öllu því frábæra fólki sem ég þekki þar J
22. Hvað þráirðu mest að fá inn í þitt líf? Í dag? Fjárhagslega velgengni :P  
23. Hvaða eiginleika meturðu mest í fari annarra?
Hreinskilni, heiðarleika og að vera jákvæður
24. Hvað er uppáhaldsveðrið þitt? sól og hiti (nema þegar hann fer yfir 40 gráður)
25. Ertu búin að taka niður jóladótið? Nei bara slökkva á öllum ljósunum, þetta fer niður í kvöld

Tolfraedi

27. september 2007 klukkan 03:58
Jam sit nuna i tolfraedi tima og er ekki alveg ad nenna ad einbeita mer ad thessu, frekar en fyrri daginn ;P flestir eru bara ad skoda tolvupostinn sinn eda a Facebook hehe :)

Thad er svo sem mest litid ad fretta, alltaf bara skolinn og soleis. Sambudin gengur bara vel og vinkona hans Geyshan er i heimsokn thessa vikuna- svo kemur einhver onnur vinkona hans i naestu viku.....

Thetta er sidasta vikan i skolanum, svo er upplestrarfri i viku og svo byrja bara profin-thad verdur fint ad vera buin med thau thegar vid forum i verklega- svo thegar vid komum tilbaka tha eigum vid bara verklegu profin eftir ;)

Svo er eg bara ad fara a arshatidina i skolanum thegar profin eru buin, og eg og Suzanne verdum einu stelpurnar i hopnum, og svo 10 strakar (eg er svo sem ekkert ad kvarta hehe) thad verdur stud :)

A manudaginn eru svo bara 8 vikur thangad til eg fer hedan, og viku seinna kem eg a klakann- madur er bara farinn ad hlakka til :)

Hmm hef ekki mikid meira ad segja, held eg fari bara a bokasafnid eda eitthvad, eg er hvort sem er ekki ad gera neitt herna... :P

It´s alive!

06. september 2007 klukkan 15:19

Hehe alveg skiljanlegt að fólk sé farið að spá í hvort að ég sé enn í lifandi tölu :P

Ok við skulum sjá, hvað er búið að gerast síðan síðast? Það er kannski helst að það hafa orðið breytingar á heimilishaldinu, þ.e að Amy flutti út til að fara að búa með kærastanum sínum og við erum komnar með nýja meðleigjanda í staðinn fyrir hana. Sá heitir Geyshan (gisjhan) og er 25 ára strákur frá Brisbane (well frá Sri Lanka en hefur búið síðustu 10 ár eða svo í Ástralíu) og hann er líka í Notre Dame. Ágætis tilbreyting að fá karlmann inn á heimilið, en að búa með honum er eins og að búa með kvenmanni (hann er helmingi lengri í sturtu, 3x lengur að ákveða hvað hann á að fara í og svo gæti maður endalaust talið upp hehe)- en hann er frábær kokkur! J

Svo er ég náttla hálfnuð með seinni önnina í skólanum, en skriflega er bara búið fljótlega því svo förum við í verklegt nám í 5 vikur... ;)

Er búin að djamma soldið þessa önn (Geyshan er partýdýr! Sleppir ekki úr helgi!) en annars þá er líka bara búið að vera meira um að vera- afmæli hjá Marie vinkonu minni, innflutningspartý hjá Stuart sem er með mér í skólanum og annað afmæli (er búin að setja inn myndir, undir Ástralía 07).

                                                                                 

Var að tala við Helgu gellu á msn í dag, og við fórum að tala um þegar fólk hefur misskilið lagatexta og ég ákvað að setja inn nokkur dæmi sem við komum með:

 

Lag: Komdu með (Bjöggi+Sigga Beinteins)

Vitlaus texti:

“Ég sá hana í horninu á Mánabar,

  Hún minnti mig á brennivín/við”

Á að vera:

“Ég sá hana í horninu á Mánabar,

 Hún minnti mig á Brendu Lee”

 

Lag: The Final Countdown
Vitlaust:

“It´s a fire downtown”

Á að vera:

“It´s the final countdown”

 

Lag: Wake Me Up Before You Go-Go", með Wham!
Vitlaus texti:
Wake me up before you go-go,
'Cause I'm not standing on an oreo-o
Réttur texti:
Wake me up before you go-go,
'Cause I'm not planning on going solo

 

Lag. Þrisvar í viku (Bítlavinafélagið)

Vitlaus texti:

“fór í bæinn í dag og fékk sér varadekk .."
"..fór í bæinn í dag og fékk sér vara leg .."
"..fór í bæinn í dag og fékk sér varalit .."

Og það besta:

“fór í bæinn í dag of fékk sér þvaglegg”

Réttur texti:"

..fór í bæinn í dag og fékk sér varanlegt .."

 

 "Þjóðsöngurinn",
Vitlaus texti:
"... sem tilbiður guð, Sigurgeir ...."
Réttur texti:
"... sem tilbiður guð sinn og deyr...."

 

Og loksins uppáhaldið mitt, eitthvað sem ég bara hélt ekki að væri hægt!!! :

 
"Faðir vor", Bæn

Vitlaus texti:
"Það er vor, þú sem ert á himnum
helgist þitt nafn, tilkomi þitt ríki,
veði þinn vilji svo á jörðu sem á himni.
Eigi leið þú ost í frysti, heldur frelsa ost frá illu ...."
Réttur texti:
Það ættu nú allir að kunna hann ....

 Tók flest dæmin af: http://www.heimsnet.is/moon/fun/misheyrn/misheyrn.htm

 
Þið VERÐIÐ að tékka á því, kræst við lágum í gólfinu :D

 Ég skil bara ekki þegar folk veit hvað lagið heitir að það skuli syngja aðallaglínuna vitlaust, ok maður gerir stundum smámistök, en……

 
Talandi um að gera mistök- var að horfa á spjallþátt um daginn sem heitir Rove Live (gaurinn heitir Rove) og þetta er svona svipað og Jay Leno, nema hvað þetta er actually fyndið! Anyway, það er gaur sem kemur alltaf og er með smá pistil kallaðan “Pete space” og þar fjallar hann um þekkt folk sem hefur gert sig að fífli í liðinni viku, og í þetta sinnið var það stúlka sem var að taka þátt í fegurðarsamkeppni í USA, og þetta var Ungfrú South Carolina. Hún var spurð “Hver heldurðu að sé ástæðan fyrir því að 1 af hverjum 5 Bandaríkjamönnum getur ekki bent á Bandaríkin á landakorti? Og hún svaraði svo miklu bulli, það var sársaukafullt að horfa á! Og maður sá að kynnirinn var alveg að deyja úr hlátri plus skömm fyrir hennar hönd! Eftirfarandi er það sem hún svaraði:

 I personally believe that US Americans are unable to do so because some people out there in our nation don´t have maps and that I believe our education, such as in South Africa and the Iraq, everywhere like such as, and I believe that they should our education over here in the US should help the US, or should help South Africa ad should help the Iraq and the Asian countries so we will be able to build up our future.”

 
Vá, kannski er ástæðan sú að folk eins og hún endar sem fyrirmyndir fyrir ungt folk, eða jafnvel forsetar!!!! Og við erum að tala um að henni tókst að lenda í 4.sæti!!! Og ekki nóg með það, heldur fór hún að afsaka sig seinna í viðtali að hún hefði misskilið spurninguna og orðið taugastrekkt- og sagði líka “Personally, my friends and I, we know exactly where the United States is on our map…….I believe there should be more emphasis on geography in our education so people will learn how to read maps better.”

 
Jahá, need I say more……

Bjór

22. júlí 2007 klukkan 04:14
Já fór á pöbbinn í gær með Brad og Hannibal að horfa á fótboltann- já þið lásuð rétt, mín fór bara að horfa á fótbolta með strákunum hehehehe
Þetta var Asíubikarinn og Ástralía var að spila á móti Japan, og þetta var bara hörkuspennandi leikur skal ég ykkur segja! Í hálfleik var enn 0-0, svo eftir hlé skoraði Ástralía JEI! Neih þá skoruðu Japanir 5 mín seinna, týpískt! Og það mátti ekki vera jafntefli því þetta var síðasti undanúrslitaleikurinn og réði hverjir halda áfram í úrslitin... anyway þegar leikurinn var búinn var enn 1-1 þannig það var framlenging, 2x 15 mín en nei enginn skoraði þannig það var vítaspyrnukeppni... við vorum nú frekar örugg með okkur því ástralski markvörðurinn er geggjað góður- en nei, Japanir unnu í helvítis vítaspyrnunni grenj :(
Hehe ég tek þetta nú ekki mjög nærri mér, var gaman á meðan því stóð tíhí :P en já maginn á mér er ekki enn farinn að þola áfengi í einhverju magni- ég fékk mér bjór og allt í góðu, svo allt í einu var ég komin með Jim Beam í kók fyrir framan mig og stuttu seinna annan bjór.... Meikaði bjórinn en engan veginn hinn drykkinn... :P Ég má greinilega ekki blanda tegundum í bráð hehe
En já þið eruð kannski að velta því fyrir ykkur hver Hannibal er (þori að veðja að það hafi verið gaman hjá honum þegar Silence of the Lambs kom út... :P) en það er sem sagt danski kærastinn hennar Suzanne, en hann er í heimsókn :)
Hey já, fór inn á mbl.is í gær og það var verið að tala um nýja lagið hans Palla og myndbandið við það, þannig að audda kíkti ég á youtube á það- tíhí ég var nú bara organdi úr hlátri yfir öllum klisjunum, eins og þegar hann er í rigningunni (alltaf rigning i drama myndböndum hehe) og þessi rauði plastgalli- hot or not?? Þetta er samt hrikalega katsí lag, og maður lærir textann þegar maður er búinn að hlusta á það einu sinni ;)
jæja, segjum þetta gott að sinni, lov jú miss jú bæ :*

16. júlí 2007 klukkan 05:09
Góðan daginn!Já ég veit ég er búin að vera löt að blogga, ég er bara búin að vera svo upptekin við...... jáh sem sagt ekki neitt hehe- en það er þá heldur ekkert að blogga um.... :P Ég kláraði sem sagt heimspekina á þri í síðustu viku, nema hvað prófið er núna á miðvikudaginn.... Þetta var bara alveg ágætt, ég hafði bara nett gaman að þessu og er mjög fegin að vera búin með þetta og þurfa ekki að taka þetta á næsta ári yfir heila önn JVið fengum einkunnir á fimmtudaginn, þannig það var soldið spennufall þann daginn- vaknaði kl 8 við sms frá Jo um að þær væru komnar upp, ætlaði að kúra lengur er gat það ekki úr spenningi :P Var alveg sannfærð um að ég þyrfti að taka endurtekt í hjarta/lungna eða lífaflafræðinni- en nei, náði öllu þannig þið eruð laus við mig í allavega eina önn í viðbót..... J Öllum vinum mínum gekk bara ágætlega þannig við höldum vonandi hópinn það sem eftir er.... Fórum nokkur út að borða á föstudaginn (vorum held ég 12), og það var pínu skrautlegt..... :P Byrjuðum á tyrkneskum veitingastað niðrí Fremantle og það var skálað í kampavíni, og svo rauðvín með matnum- og það var sko nóg af víni! :P Sátum alveg heillengi, og ákváðum svo að rölta á pöbbinn. Hey já gleymdi næstum, hehe þegar við stelpurnar förum saman út að borða, og ein fer á klóstið þá fela hinar sig (undir borði eða fyrir utan, eitthvað mjög augljóst og hallærislegt) og þegar Jo fór á klóstið þá földum við hin 10 okkur undir borði (nema Justin því hann er svo stór, hann faldi sig bara á bakvið matseðilinn :p) kræst bara fyndið- jú hed tú bí ðer! :D Allavega, á pöbbnum voru það kokteilar næst á dagskrá og held ég hafi endað í bjór- eða réttara sagt með hausinn í klóstinu þegar ég kom heim :P Amy hafði farið snemma heim og var ekki að drekka, og þegar við komum heim þá kom í ljós að hún var með gubbupest L ekki gaman..... Laugardagurinn var svo ekki skemmtilegur, var alveg að drulla á mig úr þynnku allan daginn og lá bara í rúminu annaðhvort sofandi eða að horfa á dvd hehe :P kennir manni að blanda svona drykkjum.... Trúi bara ekki að ég hafi virkilega nennt þessu hverja einustu helgi hér i den :P Jæja, best að segja þetta bara gott hef hvort sem er ekki mikið meir að segja, hafið það gott lömbin mín J

Guten tag!

30. júní 2007 klukkan 04:29

Halló halló!

 

Jáh það er víst orðið soldið langt síðan ég bloggaði síðast hehe :P

Ég er sem sagt búin í prófum og gekk bara ágætlega, maður var bara algjörlega búinn á því eftir þessa önn og er enn að skríða saman eftir allt þetta ;)

Próflokadagurinn var snilld! Ég var búin í prófinu um 2leytið og hélt beint á pöbbinn,og var að drekka til 23 um kvöldið! Enduðum á skemmtistað í Cottesloe- nema nokkrir strákar í bekknum sem enduðu í spilavítinu og einn lét ekki kærustuna vita- hann var í miklum vandræðum þegar hann skreið heim til sín kl.7 morguninn eftir... hehe

Ég og Amy hétum því að drekka áfengi í 5 daga streit, og við stóðum við það! Hehe svona eru sjúkraþjálfarar framtíðarinnar :P

Ég held annars að ég sé að breytast í Ástrala- ég fór á pöbbinn síðasta lau. að horfa á rugby- og hafði gaman að!  Svo er maður aðeins að reyna að hreyfa sig, en ég er búin að fara 2x í klifur innandyra, talandi um harðsperrur hehe :P

Það er annars ekki mikið að frétta svo sem.... er reyndar komin í skólann aftur- það eru 3 skyldufög sem allir nemendur í skólanum verða að taka: heimspeki, siðfræði og guðfræði, og ég er búin með siðfræðina og ákvað að taka heimspekina á vetrarönninni (sem er í fríinu milli anna) en það tekur bara 2 ½ viku í stað heillar annar, og ég á eftir að vera fegin á 3. ári þegar ég á að vera að taka heimspekina að vera búin með hana J Þetta er líka ekki svo slæmt, 3 tímar á dag í 12 daga og maður er bara að einbeita sér að einu fagi. Og matið er bara ein kynning í tíma, ritgerð og próf sem gildir bara 30 % J Hef hvort sem er ekki mikið meira að gera í fríinu....

Jæja er að hugsa um að segja þetta bara gott elskurnar mínar, bæjós 

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur

Könnun

Hver er flottastur sem Batman?

Myndir