Guten tag!
Halló halló!
Jáh það er víst orðið soldið langt síðan ég bloggaði síðast hehe :P
Ég er sem sagt búin í prófum og gekk bara ágætlega, maður var bara algjörlega búinn á því eftir þessa önn og er enn að skríða saman eftir allt þetta ;)
Próflokadagurinn var snilld! Ég var búin í prófinu um 2leytið og hélt beint á pöbbinn,og var að drekka til 23 um kvöldið! Enduðum á skemmtistað í Cottesloe- nema nokkrir strákar í bekknum sem enduðu í spilavítinu og einn lét ekki kærustuna vita- hann var í miklum vandræðum þegar hann skreið heim til sín kl.7 morguninn eftir... hehe
Ég og Amy hétum því að drekka áfengi í 5 daga streit, og við stóðum við það! Hehe svona eru sjúkraþjálfarar framtíðarinnar :P
Ég held annars að ég sé að breytast í Ástrala- ég fór á pöbbinn síðasta lau. að horfa á rugby- og hafði gaman að! Svo er maður aðeins að reyna að hreyfa sig, en ég er búin að fara 2x í klifur innandyra, talandi um harðsperrur hehe :P
Það er annars ekki mikið að frétta svo sem.... er reyndar komin í skólann aftur- það eru 3 skyldufög sem allir nemendur í skólanum verða að taka: heimspeki, siðfræði og guðfræði, og ég er búin með siðfræðina og ákvað að taka heimspekina á vetrarönninni (sem er í fríinu milli anna) en það tekur bara 2 ½ viku í stað heillar annar, og ég á eftir að vera fegin á 3. ári þegar ég á að vera að taka heimspekina að vera búin með hana J Þetta er líka ekki svo slæmt, 3 tímar á dag í 12 daga og maður er bara að einbeita sér að einu fagi. Og matið er bara ein kynning í tíma, ritgerð og próf sem gildir bara 30 % J Hef hvort sem er ekki mikið meira að gera í fríinu....
Jæja er að hugsa um að segja þetta bara gott elskurnar mínar, bæjós

En gott að sjá blogg frá þér...var farin að halda að þú værir bara dö