16. júlí 2007 klukkan 05:09
Góðan daginn!Já ég veit ég er búin að vera löt að blogga, ég er bara búin að vera svo upptekin við...... jáh sem sagt ekki neitt hehe- en það er þá heldur ekkert að blogga um.... :P Ég kláraði sem sagt heimspekina á þri í síðustu viku, nema hvað prófið er núna á miðvikudaginn.... Þetta var bara alveg ágætt, ég hafði bara nett gaman að þessu og er mjög fegin að vera búin með þetta og þurfa ekki að taka þetta á næsta ári yfir heila önn JVið fengum einkunnir á fimmtudaginn, þannig það var soldið spennufall þann daginn- vaknaði kl 8 við sms frá Jo um að þær væru komnar upp, ætlaði að kúra lengur er gat það ekki úr spenningi :P Var alveg sannfærð um að ég þyrfti að taka endurtekt í hjarta/lungna eða lífaflafræðinni- en nei, náði öllu þannig þið eruð laus við mig í allavega eina önn í viðbót..... J Öllum vinum mínum gekk bara ágætlega þannig við höldum vonandi hópinn það sem eftir er.... Fórum nokkur út að borða á föstudaginn (vorum held ég 12), og það var pínu skrautlegt..... :P Byrjuðum á tyrkneskum veitingastað niðrí Fremantle og það var skálað í kampavíni, og svo rauðvín með matnum- og það var sko nóg af víni! :P Sátum alveg heillengi, og ákváðum svo að rölta á pöbbinn. Hey já gleymdi næstum, hehe þegar við stelpurnar förum saman út að borða, og ein fer á klóstið þá fela hinar sig (undir borði eða fyrir utan, eitthvað mjög augljóst og hallærislegt) og þegar Jo fór á klóstið þá földum við hin 10 okkur undir borði (nema Justin því hann er svo stór, hann faldi sig bara á bakvið matseðilinn :p) kræst bara fyndið- jú hed tú bí ðer! :D Allavega, á pöbbnum voru það kokteilar næst á dagskrá og held ég hafi endað í bjór- eða réttara sagt með hausinn í klóstinu þegar ég kom heim :P Amy hafði farið snemma heim og var ekki að drekka, og þegar við komum heim þá kom í ljós að hún var með gubbupest L ekki gaman..... Laugardagurinn var svo ekki skemmtilegur, var alveg að drulla á mig úr þynnku allan daginn og lá bara í rúminu annaðhvort sofandi eða að horfa á dvd hehe :P kennir manni að blanda svona drykkjum.... Trúi bara ekki að ég hafi virkilega nennt þessu hverja einustu helgi hér i den :P Jæja, best að segja þetta bara gott hef hvort sem er ekki mikið meir að segja, hafið það gott lömbin mín J
http://www.blog.central.is/naestved
Jóhanna Bettý
já það var bara harkan á þetta áður fyrr, það virðist eitthvað fara minna fyrir því með hverju árinu :P er maður nokkuð að verða gamall hmmm??? en til hamingju með að hafa náð öllu :D og gangi þér vel í prófinu á miðvikudaginn! heyri í þér....
#1
16. júlí 2007 klukkan 21:03
Til lukku með einkunnirnar, alltaf gaman þegar manni gengur vel. Vissi nú alveg að þú myndir á öllu enda Marían mín hér á ferð.
En hey hvað er málið með að segja kólstið og skrifa það líka heitir þetta ekki klósett:) veit að ég segi og skrifa þetta líka en er að reyna að hætta.
Jamm shitt ekki tala um djammið í denn það var sko SUDDALEGT. en GUÐ hvað þetta var skemmtilegur tími. ég væri alveg til í að fá þennan tíma aftur í svona tvær vikur hehehehehe
En hey hvað er málið með að segja kólstið og skrifa það líka heitir þetta ekki klósett:) veit að ég segi og skrifa þetta líka en er að reyna að hætta.
Jamm shitt ekki tala um djammið í denn það var sko SUDDALEGT. en GUÐ hvað þetta var skemmtilegur tími. ég væri alveg til í að fá þennan tíma aftur í svona tvær vikur hehehehehe
#2
17. júlí 2007 klukkan 20:45
VIÐ VILJUM BJÓR, BJÓR, BJÓR OG MEIRI BJÓR....
Til hamingju með próf árangurinn..
Til hamingju með próf árangurinn..
#3
19. júlí 2007 klukkan 10:03
ja þú varst frekar utan við þig á laugardaginn þegar þú spurðir svo pent að því hvort ég væri að djamma ;) en til hamingju með prófin aftur
#4
19. júlí 2007 klukkan 23:25
Takk takk fyrir :) Hehe já það er búið að taka heila viku bara að meika að hugsa um áfengi hehe :P En já Helga, þetta er bara svipað og að segja og skrifa þúst og eimmitt og fleira, maður veit alveg að það er vitlaust en þetta er kannski bara til að leggja áherslu á orðið.... :)
#5
21. júlí 2007 klukkan 08:10
hvah var mín bara að djamma ;-)
Held þú þurfir að æfa djammþolið betur- tek þig í kennslu þegar þú kemur heim.......
.... ef ég verð ekki orðin dauð af áfengisneyslu :þ hahahahaha
Miss jú, knús knús
Held þú þurfir að æfa djammþolið betur- tek þig í kennslu þegar þú kemur heim.......
.... ef ég verð ekki orðin dauð af áfengisneyslu :þ hahahahaha
Miss jú, knús knús
#6
21. júlí 2007 klukkan 13:06
Já það kemur alveg fyrir að ég sjáist á djamminu hehe :p Já Helga ég vil helst að það verði enn meira blóð en áfengi í líkamanum eftir jólafríið hehe......
#7
22. júlí 2007 klukkan 04:00
