Hver er ég?

  • Nafn: María Barbara Árnadóttir
  • Staður: Ástralía
  • Atvinna: Nemi

Auglýsing

Klukkan

Bara profa

15. febrúar 2007 klukkan 02:20

Eins og thid hafid tekid eftir tha birtist bara ekkert blogg a thessari sidu og eg er buin ad hafa samband vid bloggar.is en fae engin svor! Thannig eg akvad ad profa ad setja inn nyja faerslu og sja hvort hun birtist, ef ekki tha verd eg bara ad gera nytt blogg! !@#^$%*&^*&^(


Eg aetla tha ekkert ad vera ad hafa thetta lengra ef ske kynni ad thetta birtist ekki :)

Vid bara heyrumst og sjaumst :)

Deutchsland über alles!

06. febrúar 2007 klukkan 01:45

Ja ja, til hamingju með bikarinn strákar ;)

Einnig vil ég óska brósa til hamingju með ammælið en hann er 29 ára í dag:) 
Og hún Rakel átti 26 ára ammæli í gær ;) 

Hvað var annars gert af sér um helgina? Ég fór í leikhús á föstudaginn á "Viltu finna milljón?" og það var bara stórfínt, ég bókstaflega grenjaði úr hlátri!
Á laugardag var svo kveðjupartýið mitt og heppnaðist það bara ágætlega, enginn fór að grenja og enginn var laminn og telst það bara gott :P 
Í gær var bara legið í leti og ég endaði hrjótandi fyrir framan sjónvarpið í gærkvöldi, en við Jóhanna Bettý vorum að horfa á Cars :) 

Dagurinn í dag var líka bara tekinn rólega, nú er ég hætt að vinna og bara að tjilla þangað til ég fer út sem er næsta sunnudag....

En jæja ætla að lesa aðeins áður en LOST byrjar, hafið það gott :)
  

02. febrúar 2007 klukkan 01:06
Já þið segið það, soldið langt síðan ég bloggaði....:P
Svo sem ekki mikið að gerast hjá manni frekar en fyrri daginn, nema kannski það að ég skellti mér í bíó í gærkvöldi á myndina The Prestige. Fyrir ykkur sem vitið ekki þá er það sami gaur sem gerir þessa mynd og gerði Memento og Batman Begins... Og svo var náttla bara plús að Hugh Jackman og Christian Bale leika aðalhlutverkin (og já ég EEEEEELSKA Christian Bale! Og ekki bara þvi hann er sætur og KROPPUR DAUÐANS, heldur er hann líka svoleiðis fantafínn leikari!) Allavega þá fjallar myndin um tvo töframenn sem eru vinir en verða að keppinautum, og hún gerist í kringum aldamótin 1900. Ég vil ekki segja of mikið því partur af skemmtuninni en að vita sem minnst :)
Þetta er flott mynd, mikið lagt uppúr smáatriðum og skemmtilegt að sjá hvernig sum töfrabrögðin voru framkvæmd. Hún byrjar kannski soldið hægt en vinnur á, og þeir leika báðir mjög vel. Það eina sem vantar er að Christian Bale sést ekki nóg ber :P
Fyrir ykkur sem hafið áhuga á að kynna ykkur Christian Bale bendi ég á myndirnar Velvet Goldmine (ekki fyrir hommahatara), All the little animals, American Psycho (allt í lagi mynd en hann er FRÁBÆR í henni), Equilibrium (Brave new world meets The Matrix) og ef þið eruð ekki búin að sjá Batman Begins þá er það nú bara skylda að kíkja á hana!
Jæja best að drepa ykkur ekki meir úr leiðindum með svona bíó bulli í mér.... ;)

Sí jú leiter aligeiter :P

20. janúar 2007 klukkan 05:37
Langaði bara að láta vita að ég er búin að bæta einni mynd við ;)
En svo þetta sé ekki bara ein lína þá segi ég kannski pínu meira. Hmmmm já ég er sem sagt ekki búin að gera neitt af viti alla vikuna (nema horfa á dvd og blogga hehe) og var svo að koma heim úr matarboði rétt áðan. Það var sem sagt þorramatur á boðstólum, og allt í lagi með það, nema hvað maginn er ekki alveg að meðtaka matinn og er eitthvað að láta í sér heyra :P
En já hvað er málið með að í hvert skipti sem ég fer í ræktina þá hugsa ég með mér hvað ég ætli sko að vera ógó dugleg að drattast, en svo bara líður kannski vika og maður er ekki enn farinn aftur? ég er alveg vonlaus :P og skammarlegt að segja en ég er ekki einu sinni búin að fara í sund síðan ég kom til landsins! og ég elska að fara í sund- kannski helst það í hendur að ég hef ekki nennt að fara í ræktina og þar af leiðandi langar mig ekki að bera mig í baðfötum fyrir framan landann..... eða kannski er það því ég er ekki á bíl og er of löt til að fara í strætó (kannski ekki skrýtið þar sem maður er fljótari að labba!).
Nei sko, bara komin ágætis færsla hehe :P
hafið það gott um helgina, aldrei að vita nema ég verði dugleg :P

17. janúar 2007 klukkan 22:54

Halló halló, hvað segiði gott í dag? Alltaf sama bongóblíðan ekki satt!

En já, ég er búin að gera link á kvikmyndagagnrýni og 3 myndir komnar hjá mér ( nei ég er ekkert dugleg við að glápa :P) Svo held ég að það séu bara flestir búnir að kjósa upöpáhalds Bondinn sinn og það voru heil 6 atkvæði sem komu út úr þessu, og skiptust þau bróðurlega á milli Sean Connery og Daniel Craige og ég held ég sé bara sátt við það :) Ég hlakka svo bara til að sjá næstu Bond mynd með þessu áframhaldi. Svo ætla ég bara að halda mig við kvikmyndaþemað í næstu könnun hehe:) Og þið megið endilega koma með óskir ef það eru einhverjar myndir sem þið hafið í huga og viljið að ég deili skoðun minni með ykkur (innan skynsamlegra marka!).....

Jæja, ég er að hugsa um að skríða bara undir sæng eða eitthvað ;) ble ble

ÖkuMENN!

14. janúar 2007 klukkan 01:16
Já hvað haldiði að hafi ekki komið fyrir mig í dag- jújú það var klesst á mig! Ég var sem sagt á leiðinni í Hagkaup og var að beygja út úr hringtorginu þar sem McDonalds er, nema hvað það er gaur að koma að hringtorginu á Suðurlandsbrautinni og hann sér ekki stefnuljósið hjá mér og keyrir í hliðina á mér (ég var á bílnum hans pabba) og það stórsér á afturhurðinni..... Fyrir þá sem vita ekki þá var klesst aftan á mig á þessu sama hringtorgi í okt.´05 og þá var ég einmitt líka á bílnum hans pabba! Og það var líka strákur! Og svo er sagt að kvenfólk kunni ekki að keyra! En já, þetta var sem betur fer ekkert harður árekstur og engan sakaði, og strákurinn var mjög almennilegur þannig það þurfti ekkert að kalla til lögreglu.
En já, hafiði það bara sem best lömbin mín og gangið hægt inn um gleðinnar dyr ;)

Ps. þið málfræði snillingar sem notið "víst að" -ég talaði við doktor í íslensku og hann sagði að þetta væri bara bull og vitleysa og bandvitlaus íslenska! :)

Barnaland.is

12. janúar 2007 klukkan 21:49
Já ég drattaðist í ræktina í gær, og það fyrsta sem ég sé þegar ég kem inn í klefa eru stelpur sem líta út fyrir að vera svona 12 ára...! Svo kem ég í salinn og það er bara þó nokkuð af krökkum sem hafa verið svona 13-15 ára... Og einn var hjá einkaþjálfara! Ég meina, er ekki aldurstakmark í líkamsræktarstöðvar?? Æ ég veit ekki, kannski er ég bara orðin svona gömul :P En vá hvað ég er orðin í lélegu formi mar, ég var bara farin að skjálfa eftir nokkur sett :P og get ábyggilega hlakkað til skemmtilegra harðsperra á morgun, jibbí!

Hmmm ég er eitthvað frekar andlaus þessa stundina, hlýtur að vera veðrið... maður er bara alltaf eitthvar ómögulegur- í gær lá ég bara í rúminu milli 17-23 að glápa á DVD!
Horfði meðal annars á Miami Vice- bara vonbrigði ársins! Eruð þið ekki að grínast?? Þúst Colin Farrell, Jamie Foxx og Michael Mann að leikstýra (Ali, Collateral, Heat) og þetta stóðst bara engan veginn undir væntingum. Foxx og Farrell leggja nákvæmlega ekkert á sig, ekki einu sinni hægt að slefa yfir Colin Farrell þar sem hann er mega sleezy með þetta hár og skegg... Það hefði alveg verið hægt að gera betri hluti við þessa hugmynd, en það fer eitthvað mikið forgörðum í handritsgerð og leikstjórn, og svo ég steli aðeins frá honum brósa, en þá lítur myndin eiginlega bara út eins og tónlistarmyndband í fullri lengd! Hvað varstu að hugsa Michael Mann?? En já, myndin fær 5/10 í einkunn hjá mér- hún er þó ekki það léleg að ég hafi ekki haft það af að klára að horfa...
   

Kuldakast!

09. janúar 2007 klukkan 23:28

Vá eruð þið ekki að grínast með hvað það er farið að vera kalt!
Ég er greinilega ekki lengur Íslendingur fyrir fimmaura! Mér er bara alltaf kalt þessa dagana! Ég veit ég ætti svo sem ekki að kvarta miðað við þarna -10 og rokið sem var um daginn, en samt.... Svo bætir það ekkert þegar vinir manns eru að hringja frá Ástralíu í "aðeins" 27 stiga hita!
En já, nóg um það, hvað segið þið annars? Helgin góð? Leggst árið vel í ykkur? Helgin hjá mér var bara stórfín- Jói frændi kom í heimsókn á fös.kvöldið og við trítuðum okkur KFC og svo var horft á X-factor.
Lau. kvöldið var geggjað- byrjaði með guðdómlega góðum mat á Skúlagötunni og var það gamla gengið ég, Helgurnar, Gulli, Jóhanna Bettý og Erna og Jobbi. Sigga djaunaði svo þegar hún var búin að keppa, og svo bættust fleiri í hópinn þegar leið á kvöldið- geggjað gaman í singstar og læti, og bærinn var bara góður- fyrir utan að maður varð orðinn að algjöru hangikjöti! Get ekki sagt annað en að ég hlakki til næsta sumar þegar reykingar verða bannaðar á skemmtistöðum! þvílíkur vibbi!

Heyriði, svo endilega að kjósa flottasta bondinn ef þið eruð ekki búin- áhugavert að sjá að hingað til eru það aðeins Sean Connery og Daniel Craige sem eru að keppast um titilinn þar sem áhugamenn um Bond segja að Craige minni mjög á Connery (og sjálf er ég sammála því) .....

Svo var ég að spá hvort ég ætti að taka upp á því að vera með kvikmyndagagnrýni hérna, mynduð þið hafa áhuga á að lesa svoleiðis, eða yrði það bara tímasóun hjá mér?

Læt þetta gott í bili gott fólk, love jú miss jú bæ :)

Gleðilegt nýtt ár!

02. janúar 2007 klukkan 02:24
Já gleðilegt nýtt ár allir saman :)
Vona að allir hafi átt ánægjuleg jól og áramót, mín voru allavega stórfín ;)
Eins og flestir vita var ég í Noregi um jólin og það var mjög fínt, gott veður og náttla gaman að vera með familíunni :) Líka fínt að sleppa við jólastressið hérna á Íslandi :)
Áramótin voru líka stórfín,  var í mat hjá Hófí frænku og fór svo eftir flugeldana og soleis í partý hjá Jóhönnu Bettý, eða réttara sagt bekkjarbróður hennar en það voru fleiri vinir hennar þarna held ég :) Og þessi bekkjarbróðir hennar er nú bara Martha Stewart- bara búinn að gera rækjusalat og tartalettur! Svaka fínt partý, og var komin heim um hálfsjö.
Hvernig fannst ykkur annars skaupið í ár? Mér fannst það bara þrælfínt, en það var kannski soldið mikið miðað að yngri áhorfendum (kannski allt í lagi eftir öll sem bara amma og afi fatta.... :P) Langbest fannst mér myndin sem Baugsfeðgar höfðu látið gera um sig, hahahahaha :)

Heyriði, ég verð bara að segja ykkur frá soltlu sem ég las í Vikunni. Málið er að það var gaur í USA að fara að gifta sig, og það var náttla haldið steggjapartý og fengin strippari sem var, eins og þær flestar eru þekktar fyrir, mjög brjóstgóð. Nema hvað hún var að hrista brjóstin framan í stegginn, og hann með andlitið á milli melónanna- og byrjar svo að baða út öllum öngum. Auðvitað halda allir að gaurinn sé að fagna, en fatta of seint að hann nær ekki andanum, og þeir uppgötvuðu það svo seint að gaurinn kafnaði og lést!
Ekki nóg með vitleysuna- fjölskylda gæjans er búin að kæra stripparann og lækninn sem setti fyllinguna í hana!
AMERÍKANAR!!! kræst!

Halló halló

13. desember 2006 klukkan 03:32

Jæja þá er ég loksins farin að gera eitthvað í að fá mér nýtt blogg, hitt var bara engan veginn að gera góða hluti.......

Hvað hefur svo drifið á daga mína...??? Hmm, það er náttla helst í fréttum að ég kom á klakann ;) Það var alveg insane að gera hjá mér síðustu tvær vikurnar áður en ég kom, próf og skila íbúðinni af mér. Ég fer svo að leigja með tveimur vinkonum mínum úr skólanum, þeim Suzanne og Amy, og það á eftir að vera alveg heljarinnar stuð jibbí :) Og það á líka eftir að vera algjör snilld að geta bara farið á milli herbergja ef maður skilur ekki eitthvað og fengið þær til að hjálpa manni :P

Hérna á Íslandi hefur svo sem ekkert merkilegt verið að gerast hjá mér, ég er byrjuð að vinna og er svo að fara til Norge í næstu viku, 20.-29. desember- það verður gott að fá alveg frí :)

Ég veit ég hef ekki verið dugleg að hitta fólk, ég fór bara alveg með mig síðast þegar ég kom til Íslands því það var svo brjálað að gera hjá mér, m.a. að vera alltaf einhvers staðar og að hitta alla og ég kom út aftur alveg uppgefin og hefði þurft frí frá fríinu! Hehe :P

Þannig ég er bara að taka því rólega fram yfir jól...


Hvað finnst ykkur annars um þær fréttir hvernig fólk er að taka því þegar það verða slys og þarf að loka vegum? Mér persónulega finnst þetta alveg hneykslanleg hegðun- að fólk kunni ekki að skammast sín?? Að dirfast að skammast í lögreglunni og segja þeim að hunskast til að drífa bílflökin af veginum!!! Það dó einhver! Er fólk ekki að skilja að það gengur fyrir að rannsaka dauðsfall?!! Gjörsamlega sneytt allri virðingu fyrir öðrum!  Úff ég varð bara svo reið að lesa um þetta, þurfti að fá smá útrás!


En jæja, segi þetta bara gott.

Síðan er samt enn í vinnslu, ákvað að drífa bara færsluna inn ;)

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur

Könnun

Hver er flottastur sem Batman?

Myndir