Hver er ég?

  • Nafn: María Barbara Árnadóttir
  • Staður: Ástralía
  • Atvinna: Nemi

Auglýsing

Klukkan

Thank you for smoking

Mig var búið að langa til að sjá þessa mynd í dálítinn tíma, og loksins varð af því um daginn. Þetta er hálfgerð gamanmynd, og kannski soldið verið að gera grín að öllum þessum réttardrama myndum sem hafa verið gerðar eins og t.d John Grisham myndirnar. Hún fjallar s.s um mann (Aaron Eckhart) sem er að vinna sem talsmaður tóbaksframleiðenda, og hvernig hann lifir með því.
Það sem ég fílaði mest við myndina var að það er hvorki verið að mæla með eða gegn reykingum, heldur er verið að sýna fólki að það á bara að kynna sér hlutina og taka sjálfstæða ákvörðun- og ég veit ekki hvort þeir sem hafa séð myndin tóku eftir þvi að enginn sést reykja í myndinni......Það er samt ekki mikið hægt að segja um myndina án þess að gefa upp allan söguþráðinn þannig ég mæli bara með því að sem flestir tékki á henni.
En í hnotskurn þá er handritið frábært og Eckhart, sem og flestir leikarar myndarinnar, alveg meiriháttar í þessu hlutverki. Það eina sem hefði mátt sleppa var Katie Holmes, þó hún komist nú ágætlega frá þessari mynd, eins og hún getur nú stundum verið leiðinleg- enda er þetta öðruvísi hlutverk en maður er vanur að sjá hana í.
Lokaeinkunn: 7.5/10


Phone Booth

Hérna erum við komin með eina frumlegustu spennumynd síðustu ára verð ég að segja.
Colin Farrell leikur hér mann sem lendir í því að vera haldið í hálfgerðri gíslingu í símaklefa í New York af leyniskyttu sem hótar að drepa hann ef hann leggur á.
Það er eins hérna að maður má helst ekki vita of mikið um söguþráðinn til að skemma ekki fyrir.....
Handritið hérna er líka alveg frábært, og Colin Farrell er alveg brilliant í þessu hlutverki. Hann fær virkilega að sýna hvað í sér býr hérna, og á að vera duglegri að velja sér þannig hlutverk.
Aðrir leikarar standa sig líka prýðilega, annars mæðir mest á Farrell. Það eina er að leikkonurnar í aðalkvenhlutverkunum finnast mér alveg hrikalega leiðinlegar, þær Katie Holmes og sérstaklega hún Radha Mitchell. Hún er nú bara ein sú allra litlausasta og mest boring leikkona sem ég veit um!
En já, flott handrit, flott leikstjórn og flottur leikari í aðalhlutverki- klikkar ekki! Og þið skuluð passa að hafa alveg 90 mín ótruflaðar til að horfa á þessa mynd því hún grípur mann frá fyrstu mínútunum.
Lokaeinkunn: 8/10

The Constant Gardener

Myndin fjallar um Justin (Fiennes) sem vinnur hjá breska utanríkisráðuneytinu sem þarf starfs síns vegna að fara til Afríku. Kona hans,Tessa, vill ólm fara með honum, en hún er virkur meðlimur í mannréttindabaráttum ýmiss konar. Þau eru ólíkir einstaklingar, hann er rólyndismaður sem lætur lítið í sér heyra, en hún róttæk og óhrædd við að láta skoðun sína í ljós við hina ýmsu ráðamenn.
Hún lætur lífið við frekar dularfullar aðstæður, og maður hennar kemst á snoðir um samsæri sem hún var komin langt á leið að afhjúpa.
Þetta er góð mynd, en ekki fullkomin. Handritið er frekar gott, og margt í þessari mynd sem vekur mann til umhugsunar. Þetta er frekar langdregin mynd á köflum, þó hún sé ekki löng enda er þetta kannski ekki spennumynd sem slík. Myndatakan fór líka stundum í taugarnar á mér, en hún hefur ábyggilega átt að kalla fram einhver áhrif- en ég fíla bara ekki alltaf skot af hálfum andlitum og þess háttar.
Allir leikarar standa sig vel, og þá sérstaklega Rachel Weisz í hlutverki Tessu, og ekki við öðru að búast af Fiennes þar sem hann er náttla frábær leikari.
Svo er bara að kíkja á Hotel Rwanda sem ég hef lengi ætlað mér, en hef heyrt að hún sé svo átakanleg að ég vona bara að mitt litla hjarta þoli að sjá hvað heimurinn er vondur.....
En já, lokaeinkunn: 7/10


The Transporter 2


Já þið sem eruð búin að sjá fyrri myndina eigið endilega ekki að láta þessa mynd framhjá ykkur fara (auðvitað svo framarlega sem þið fýluðu hana).
Jason Statham endurtekur hlutverk sitt sem Frank Martin, nema hvað hann er ekki að flytja ólöglega hluti fyrir glæpamenn heldur er hann að gera vini sínum greiða og leysa hann af sem bílstjóri fyrir ungan son einhvers ríkisbubba. Þegar stráknum er rænt verður hann að grípa til sinna ráða til að bjarga honum, og mannorði sínu.
Þetta er náttla engin klassík og enginn að fara að vinna óskarsverðlaun, en ég hafði mjög gaman að henni. Hún er "svolítið" ýktari en fyrri myndin, og hinn bráðskemmtilegi karakter Franks fær ekki að njóta sín jafnvel- en þó er ekki bráðnauðsynlegt að hafa séð fyrri þó það sé kannski skemmtilegra.
Statham er frábær í þessu hlutverki, og maðurinn er sko BARA kúl. Hann gerir öll stunt sjálfur og er bara þrælflottur, og það eru nokkur mjög flott bardagaatriði.
Það er þó eitt sem hefði mátt missa sín í þessari mynd og það er ljóshærður tannstöngull sem heldur að hún sé mega kúl en er bara megarækja og fékk bara hlutverkið því hún hefur verið til í að vera hálfberrössuð alla myndina.
Og já, ef þið eruð ekki búin að sjá Snatch (hann leikur aðalhlutverkið í henni) þá VERÐIÐ þið að sjá hana, sú mynd er algjör snilld (Guy Ritchie áður en hann giftist Madonnu-need I say more....)!
En já, lokaeinkunn: 7/10



Good night, and good luck

Jáh, hér erum við sko að tala saman! Alveg fantafín mynd hér á ferð og fólk sem vill sjá mynd sem hefur virkilega eitthvað að segja á ekki að láta hana fram hjá sér fara.
Hún fjallar sem sagt um tímabilið þegar öldungardeildar þingmaðurinn Joseph McCarthy var með hálfgerða ógnarstjórn, þ.e. hann fór fyrir rannsóknarnefnd sem vann að því að koma upp um kommúnista. Þetta óx svo hrikalega að úr urðu ofsóknir, og á endanum máttir þú ekki þekkja mann sem átti mömmu sem átti vin sem 20 árum áður hafði talað við mann sem var grunaður um vera kommúnisti! Enginn þorði að segja neitt á móti honum, af ótta við að vera sjálfur stimplaður kommúnisti. En það var sem sagt gaur sem vann á CBS sjónvarpsstöðinni sem sagði hingað og ekki lengra, og í fréttaskýringaþætti sínum reyndi hann að sýna landanum hvað var í gangi. 
Sjónvarpsefni og kvikmyndir eru öflugur miðill og hægt að nýta á margan hátt, bæði jákvæðan og neikvæðan, og mér finnst alveg frábært þegar hann er notaður svona.  -Þó að þessi mynd fjalli um ákveðið tímabil í sögu USA þá á hún fullt erindi á okkar tíma og skilaboðin eru skýr og eiginlega best lýst með orðum Edward Murrow í myndinni: "We cannot defend freedom abroad by deserting it at home."
Eins og ég segi, ágæt tilbreyting við bílaeltingarleiki, endalausar sprengingar og fyrrverandi Playboy módel. 
Lokaeinkunn: 7.5/10  

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur

Könnun

Hver er flottastur sem Batman?

Myndir